Sækja Flash Player til að skoða myndirnar.










 

                                
Fréttir

7.2.2012 01:01:00
Tilboð opnuð í viðbyggingu Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði

Tilboð í 1. áfanga viðbyggingu Grunnskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði voru opnuð í síðustu viku, nánar tiltekið 3. febrúar. Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins.

6.2.2012 20:01:00
Ungur siglfirskur markmaður gengur til liðs við Breiðablik

Hlynur Örn Hlöðversson, knattspyrnumarkmaðurinn ungi, skrifaði undir þriggja ára samning við Breiðablik á laugardaginn var.

6.2.2012 14:01:00
Dagur leikskólans

Dagur leikskólans er í dag og er haldinn um allt land, í fimmta sinn. Af því tilefni fóru siglfirsk leikskólabörn niður í Ráðhús kl. 10.30 í morgun og heimsóttu Sigurð Val Ásbjarnarson bæjarstjóra, afhentu honum veggspjald með gullkornum höfðum eftir ungum snillingum á leikskólaaldri og sungu svo fyrir hann og aðra starfsmenn nokkur lög.

6.2.2012 13:50:00
Dýrðleg morgunsýn

Það var fagurt um að litast í Siglufirði í morgun, þegar roðinn lék sér við bláa tóna á himninum allt um kring. Augnabliki síðar var þessi dýrðarsýn horfin, en Sveinn Þorsteinsson var uppi á hárréttum tíma og náði að festa hana á tölvukubb myndavélar sinnar.

5.2.2012 19:40:00
Vel gert

Með nútíma tölvutækni er hægt að gera ýmislegt við ljósmyndir, t.d. breyta þeim fram og aftur, og sennilega er Photoshopforritið vinsælast, ef ekki best, í þeim heimi öllum. En að sjálfsögðu þarf að auki kunnáttu til og hana verulega. Að þessu sinni er sunnudagsinnslagið tileinkað því fyrirbæri.

4.2.2012 22:15:00
Fljúgandi snjóbrettakappar

Kappar á vegum Snjóbrettafélags Íslands settu í gærdag upp brautir og palla, ljóskastara og hljóðkerfi og sýndu listir sínar svo í gærkvöldi milli Roaldsbrakka og Gránu, meðal annars með því að renna sér frá Hafnargötunni og stukku yfir eitt og annað sem á vegi þeirra varð. Um 150-200 manns munu hafa fylgst með og þótt mikið til koma.

4.2.2012 22:05:00
Svipmyndir 5. viku ársins 2012

Nú er 5. vika ársins senn liðin. Hún var snjólétt. Fyrsta daginn, 29. janúar, var stillt veður og hláka og á mánudeginum svipað og nokkrir geislar féllu yfir bæinn. Á þriðjudag tók að rigna seinnipartinn og á miðvikudag enn frekar, uns kvöldaði. Síðan hefur verið rólegt og bjart að mestu leyti; sól meira að segja í gær og fyrri part þessa dags. Núna er einhver lítilsháttar úrkoma og tekið að hvessa.

4.2.2012 21:45:00
Kirkjuskóli á morgun

Á morgun, frá kl. 11.15 til 12.45, verður barnastarf í Siglufjarðarkirkju. Samverurnar eru byggðar upp á líkan hátt og verið hefur undanfarin ár, byrjað niðri í kirkju með söng og fræðslu en síðan haldið upp í safnaðarheimili til ýmissa leikja og starfa.

4.2.2012 12:45:00
Á mótórhjóli frá Siglufirði til Kópaskers

Héðinsfjörður.is birtir í dag áhugavert myndband sem tveir erlendir ferðamenn tóku, er þeir óku á mótórhjólum sínum frá Siglufirði til Kópaskers sumarið 2011, auk þess að bæta inn í það frábærum ljósmyndum eftir á.

3.2.2012 14:30:00
Febrúarblað Hellunnar komið út

Febrúarblað Hellunnar var að koma út og er fjölþætt að venju. Þar er m.a. sagt frá Nirði Jóhannssyni, sem er að smíða líkan af hákarlaskipi, greint frá kjöri Íþróttamanns Fjallabyggðar 2011, litið inn í Menntaskólann á Tröllaskaga, sagðar nýjustu fréttir af Egilssíld og starfseminni þar og einnig ritar bæjarstjóri, Sigrður Valur Ásbjarnarson, um almenningssamgöngur í Fjallabyggð.



<<Fyrri      Næsta>>

SIGLFIRÐINGUR.IS | Sími: 899 0278 | Netfang: sae@sae.is